Fótbolti

Zlatan ekki á förum frá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það er enn slúðrað um það að Zlatan Ibrahimovic sé á förum frá Barcelona. Nú síðast var hann orðaður við AC Milan í dag.

Umboðsmaður Zlatan hefur ekki undan að hafna öllum þessum sögusögnum og hann hefur nú lýst því að yfir enn og aftur að Zlatan sé ekki að fara frá Börsungum.

"Ibrahimovic er ekki að flytja. Zlatan er frábær leikmaður sem margir hafa áhuga á en það mun ekkert breytast hjá honum. Hann er og verður leikmaður Barcelona áfram," sagði Mino Raiola umboðsmaður.

Milan hefur lengi haft augastað á Zlatan en afar líklegt er að félagið geti fengið hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×