Körfubolti

LeBron haltraði af velli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Stuðningsmenn Miami Heat fengu fyrir hjartað þegar ofurstjarnan LeBron James haltraði af velli í sýningarleik gegn rússneska liðinu CSKA Moskva.

James skoraði 22 stig á 26 mínútum áður en hann haltraði af velli.

"Það er í fínu lagi með mig," sagði James sem mun hugsanlega ekki spila næsta leik þó svo hann segist sjálfur vera klár í slaginn.

Miami var lengi vel undir í leiknum en kom sterkt til baka í lokin og vann fínan sigur, 96-85. Chris Bosh var með 17 stig og 8 fráköst.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×