Fótbolti

Khedira í læknisskoðun hjá Real Madrid

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Sami Khedira er í leiðinni í læknisskoðun hjá Real Madrid. Þetta staðfesti Stuttgart í yfirlýsingu í dag.

Khedira hefur risið upp á stjörnuhimininn á einu ári en hann lék vel með þýska liðinu á tímabilinu og var einnig góður á HM.

Hann er 23 ára gamall miðjumaður en Guti er farinn frá liðinu og er Khedira því eftirmaður hans.

Khedira var einnig orðaður við Chelsea í sumar en hann mun semja við Madrídarliðið eftir læknisskoðunina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×