Fótbolti

Messi með tvö í sigri Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Lionel Messi fagnar öðru marka sinna í kvöld. Nordic Photos / AFP
Barcelona vann í kvöld 4-1 sigur á Tenerife í spænsku úrvalsdeildinni og er komið með fjögurra stiga forystu á toppnum. Real Madrid á þó leik til góða og getur minnkað muninn aftur í eitt stig á morgun en þá klárast þriðja síðasta umferð tímabilsins. Lionel Messi kom Barcelona yfir á 17. mínútu en Roman jafnaði metin fyrir gestina skömmu fyrir leikhlé. Börsungar skoruðu svo þrjú mörk í síðari hálfleik. Þar voru að verki Bojan, Pedro og Messi sem hefur nú skorað 31 mark í deildinni í vetur. Tveimur öðrum leikjum í deildinni er lokið í kvöld. Almeria vann 4-2 sigur á Villarreal og þá gerðu Getafe og Sporting 1-1 jafntefli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×