Fótbolti

Tvenna hjá Benzama og sirkus-stoðsending frá Guti í 3-1 sigri Real

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karim Benzema og Guti fagna sirkusmarkinu í kvöld.
Karim Benzema og Guti fagna sirkusmarkinu í kvöld. Mynd/AFP
Karim Benzema skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Real Madrid á Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Real Madrid minnkaði þar með forskot Barcelona á toppnum í fimm stig.

Esteban Granero kom Real Madrid yfir með skallamarki á 13. mínútu og Karim Benzema kom Real Madrid í 2-0 á 40.mínútu eftir frábæra sókn og sirkus-stoðsendingu hjá Guti.

Guti var í færi til þess að skora sjálfur en í stað þess að skjóta gaf hann hælsendingu til baka á Karim Benzema sem skoraði í autt markið enda allir varnarmenn Deportivo komnir úr jafnvægi.

Riki hleypti spennu í leikinn með því að minnka muninn í 2-1 úr vítaspyrnu á 87. mínútu en Karim Benzema innsiglaði sigur Real Madrid með þriðja markinu á 90. mínútu eftir sendingu Álvaro Arbeloa.

Real Madrid var fyrir leikinn ekki búið að vinna í 17 deildarleikjum í La Coruna eða frá tímabilinu 1991-92 og þetta var því langþráður sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×