Fótbolti

Alves ánægður með endurkomuna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Brasilíumaðurinn Dani Alves snéri aftur í lið Barcelona um helgina er liðið spilaði gegn Malaga. Hann var ánægður með endurkomuna og segist vera í toppstandi.

„Mér leið eins og ég hefði aldrei farið í burtu. Það fer alltaf í taugarnar á mér að þurfa að vera utan vallar enda elska ég að spila fótbolta meira en nokkuð annað. Þegar ég get ekki spilað fótbolta leiðist mér allt," sagði Alves eftir leikinn.

„Ég átti margar fínar fyrirgjafir í leiknum og það er synd að við höfum ekki skorað úr neinni þeirra. Sigurinn styrkir okkur samt. Við vorum kannski ekki eins góðir og við eigum að vera en það mun ekki gerast aftur."



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×