Innlent

Skilyrði fyrir samstarfi að viðkomandi hafi horft á The Wire

Jón Gnarr á Laugaveginum. Best flokkurinn er sex menn inn í borgarstjórn samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Því er ekki ólíklegt að aumingjar muni fá allskonar eins og Jón hefur lofað.
Jón Gnarr á Laugaveginum. Best flokkurinn er sex menn inn í borgarstjórn samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Því er ekki ólíklegt að aumingjar muni fá allskonar eins og Jón hefur lofað.

„Ég bjóst við meiru. Það var sjokkerandi að heyra að það væru ekki fleiri að kjósa Besta flokkinn," segir Jón Gnarr sem er ótvíræður sigurvegari í skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Stöð 2 greindi frá en þar kemur í ljós að Besti flokkurinn nær 6 fulltrúum inn í borgarstjórn fari kosningar eins og könnunin gefur til kynna.

Sjálfstæðisflokkurinn er næst stærsti flokkurinn með fimm menn inni gangi könnunin eftir.

Spurður hvort gífurlega vinsælt myndband með flokknum, sem hefur gengið manna á milli á netinu, útskýri að hluta velgengni í könnuninni, svara Jón: „Held að myndbandið hafi hjálpað en svo líka að þetta er skemmtilegur og góður flokkur. Þetta er skemmtilegt og fallegt."

Aðspurður hvort einhver úr öðrum flokki hafi haft samband við hann með beinum eða óbeinum hætti vegna hugsanlegs samstarfs svarar Jón Gnarr neitandi. Spurður hvort einn flokkur eða annar hugnist Besta flokknum til samstarfs, verði úrslit kosninganna í lok maí með svipuðum hætti svarar Jón:

„Mér finnst það fara mikið eftir því hverjir hafi séð sjónvarpsþættina The Wire."

Þeir þættir fjalla meðal annars um stjórnsýslu og stjórnmál í Baltimore í Bandaríkjunum og þykja mjög vandaðir þættir sem taka á hinum ýmsu þáttum samfélagsgerðarinnar.

Annars gerir Jón ekki ráð fyrir öðru en að Besti flokkurinn muni bæta við sig fylgi. Tvær vikur eru til kosninga og því nægur tími.


Tengdar fréttir

Mér stekkur ekki bros á vör!

Kæru kjósendur, nú get ég ekki lengur orða bundist, hversu langt á þetta svokallaða "grín" að ganga?

Sjónvarpsmaðurinn Frímann ræðst á Jón Gnarr

„Kæru kjósendur, nú get ég ekki lengur orða bundist, hversu langt á þetta svokallaða "grín" að ganga?" spyr sjónvarpsmaðurinn Frímann Gunnarsson í aðsendri grein á Vísi.is í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×