Fótbolti

Enginn möguleiki að Zlatan snúi aftur til Juve

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Nordic Photos / AFP

Umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, leikmanns Barcelona, hefur gefið út að ekki sé mögulegt að hann snúi aftur til síns gamla félags Juventus. Zlatan yfirgaf herbúðir Juventus árið 2006 eftir að félagið var fellt niður um deild í kjölfar mútuhneykslisins sem að komst upp um.

Zlatan Ibrahimovic hefur ekki náð að fylla þær kröfur sem gerðar voru til hans eftir að hafa verið keyptur frá Inter síðasta sumar fyrir stóra upphæð.

„Það er eðlilegt að Juventus vilji kaupa stórstjörnu til að styrkja liðið. Það vita allir að Zlatan er einn af bestu leikmönnum heims," sagði Mino Raiola, umboðsmaður hans, við Tuttosport.

„Auðvitað getur allt gerst en sama hvað allir segja þá er Zlatan mjög ánægður hjá Barcelona og mun vera þar til lengri tíma. Zlatan tók sjálfur þá ákvörðun að fara til Spánar og ef hann fer einhvern tímann frá Barcelona verður það hans ákvörðun," sagði Mino um þennan magnaða framherja að lokum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×