Körfubolti

LeBron með húðflúr sem á stendur "Tryggð" - Mynd

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
LeBron á ströndinni.
LeBron á ströndinni. TMZ
Kaldhæðni dagsins fer til LeBron James sem staddur er á Bahamas þar sem hann sólar sig þessa dagana. Ljósmyndarar mynduðu hann í dag þar sem orðið "Loyalty" eða "Tryggð" kom í ljós.

Það stingur í stúf við ákvörðun James að ganga í raðir Miami Heat nýverið en hann er uppalinn í Cleveland í Ohio-fylki.

Margir töldu að heimataugar James væru of sterkar og að hann myndi aldrei fara frá Cleveland en annað kom á daginn.

Tryggðin fór því fyrir lítið en húðflúrið er á sínum stað og verður um ókomna tíð.

Frá þessu var greint á hinni feykivinsælu íslensku síðu, NBA-blogginu.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×