Erlent

IKEA blýantar í skurðaðgerðum

IKEA blýantar eru betur til þess fallnir að merkja fyrir skurðum á beinum en hefðbundnir tússpennar. Þetta segja tveir skurðlæknar í jólahefti breska læknablaðsins, British Medical Journal.

Karen Eley starfar við læknadeild Oxford-háskóla og Stephen Watt-Smith hjá John Radcliffe-spítalanum í Oxford.

Þau segja að þrátt fyrir að þau hafi vitað að blýantarnir væru vinsælir hafi komið þeim á óvart að vera réttur einn slíkur í miðri skurðaðgerð. Blýantarnir reynist þó mun betur en tússið, sem á það til að nuddast af. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×