Fótbolti

Henry og Ibrahimovic skoruðu í sigri Barcelona

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Thierry Henry gat fagnað í dag, hann skoraði annað mark Barcelona.
Thierry Henry gat fagnað í dag, hann skoraði annað mark Barcelona. Getty Images
Barcelona er komið með fjögurra stiga forskot á Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni eftir sigur á botnliði Xerez í dag. Real Madrid á leik til góða.

Jeffrén Suarez kom Barcelona yfir og Thierry Henry tvöfaldaði forystuna. mínútu síðar minnkaði Xerez muninn. Lionel Messi byrjaði á bekknum hjá Barcelona en kom inn á á 52. mínútu fyrir Suarez.

Zlatan Ibrahimovic skoraði þriðja mark Barcelona á 56. mínútu og innsiglaði 3-1 sigur.

Real Madrid mætir Real Zaragoza í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×