Fótbolti

Edwin van der Sar: Við getum alveg spilað án Wayne Rooney

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Edwin van der Sar, markvörður Manchester United.
Edwin van der Sar, markvörður Manchester United. Mynd/AFP
Edwin van der Sar, markvörður Manchester United, hefur ekki áhyggjur af því að United-liðið geti ekki spjarað sig án framherjans Wayne Rooney sem hefur farið á kostum á tímabilinu en meiddist á ökkla í Munchen í gær.

Edwin van der Sar átti mjög góðan leik í 1-2 tapinu á móti Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

"Við getum alveg spilað án Wayne Rooney. Við spiluðum án hans á móti Bolton og það getur alltaf gerst að við missum menn í meiðsli. Auðvitað viljum við að okkar bestu menn séu alltaf til taks en þeir sem koma inn í staðinn geta líka staðið sig vel," sagði hollenski markvörðurinn þegar hann var spurður út í meiðslin hans Rooney.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×