Fótbolti

Cech: Við hugsum bara um að standa okkur inni á vellinum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Petr Cech.
Petr Cech. Nordic photos/AFP

Markvörðuinn Petr Cech hjá Chelsea kveðst þekkja orðaleiki knattspyrnustjórans José Mourinho hjá Inter frá þeim tíma sem Mourinho stýrði Lundúnafélaginu og tekur því hæfilega mark á þeim fyrir leik Inter og Chelsea í Meistaradeildinni á San Siro-leikvanginum á miðvikudag.

Mourinho sagði í viðtali á dögunum að hann þekkti Chelsea inn og út og að lítið hefði breyst hvað varðaði leikskipulag og annað slíkt frá því hann stýrði félagin á árunum 2004-2007.

„Við vitum alveg hvernig Mourinho vinnur og það kom mér ekkert á óvart að hann hefði sagt það sem hann sagði. Hann er bara að reyna að láta líta út fyrir að lið hans hafi eitthvað forskot áður en leikurinn hefst. Við þekkjum hann hins vegar alveg jafnvel og hann þekkir okkur og við vitum hvernig hann vill að lið sín spili.

Við hugsum hins vegar bara um að standa okkur inni á vellinum. Tal er bara tal þegar upp er staðið og við skulum sjá til hvaða lið er betra þegar á völlinn er komið," sagði Cech í viðtali við Sky Sports fréttastofuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×