Fótbolti

Hleb vill fara aftur til Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexander Hleb í leik með Stuttgart í vetur.
Alexander Hleb í leik með Stuttgart í vetur. Nordic Photos / Bongarts

Alexander Hleb vill snúa aftur til Barcelona og berjast fyrir sínu sæti þar en hann hefur verið í láni hjá Stuttgart í Þýskalandi í vetur.

Hleb hefur þó ekki átt sjö dagana sæla í Þýskalandi og segir að samstarfið við knattspyrnustjórann Christian Gross hafi verið slæmt.

„Hann gagnrýndi mig strax frá fyrsta degi og ég fékk það á tilfinninguna að það væri sama hvað ég gerði, ekkert væri nógu gott fyrir hann," sagði Hleb við þýska fjölmiðla.

„Ég á tvö ár eftir af samningi mínum við Barcelona og ég hef metnað fyrir því að sanna fyrir sjálfum mér og öðrum að ég geti staðið mig með einu besta liði heims."

Hleb kom til Barcelona frá Arsenal árið 2008 og kom við sögu í nítján deildarleikjum í liðinu það tímabil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×