Fótbolti

Özil þakklátur stuðningsmönnum Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Þjóðverjinn Mesut Özil hefur fengið mjög góðar móttökur hjá stuðningsmönnum Real Madrid síðan hann kom þangað frá Werder Bremen. Özil er afar þakklátur fyrir þessar góðu móttökur.

"Ég varð stoltur þegar ég heyrði klappið frá áhorfendum, mjög stoltur. Áhorfendur eru að hjálpa mér mikið og einnig öllu liðinu," sagði Özil.

"Ég legg mig alltaf fram fyrir liðið og ég vona að fólkið verði áfram ánægt með mig. Það er mikill metnaður hjá liðinu í vetur. Við viljum vinna allt og ég skora á stuðningsmennina að setja traust sitt á okkur. Mourinho er góður að hvetja okkur en hann setur líka miklar kröfur á okkur."

Real Madrid mætir Ajax í Meistaradeildinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×