Fótbolti

Miklir yfirburðir Barcelona á móti Deportivo La Coruna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Barcelona-menn fagna einu marka sinna í kvöld.
Barcelona-menn fagna einu marka sinna í kvöld. Mynd/AFP
Barcelona náði sex stiga forskoti á Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 3-0 sigur á Deportivo La Coruna á Camp Nou í kvöld.

Bojan skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 16. mínútu á yfirvegaðan hátt eftir sendingu frá Xavi í gegnum miðja vörn Deportivo.

Pedro Rodriguez kom Barcelona í 2-0 á 69. mínútu þegar hann nýtti sér klaufaleg útspark markvarðar Deportivo og skoraði nánast frá miðlínu.

Yaya Touré skoraði síðan þriðja markið á 72. mínútu þegar hann var á réttum stað eftir hornspyrnu.

Real Madrid getur minnkað muninn aftur í þrjú stig á morgun þegar liðið sækir Almería heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×