Lífið

Ósáttir foreldrar

Handtekinn Chace Crawford gæti átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsisvist verði hann fundinn sekur um að hafa eiturlyf í fórum sínum.Nordicphpotos/getty
Handtekinn Chace Crawford gæti átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsisvist verði hann fundinn sekur um að hafa eiturlyf í fórum sínum.Nordicphpotos/getty

Leikarinn úr Gossip Girl, Chace Crawford, var handtekinn í Texas fyrir stuttu og ákærður fyrir að hafa eiturlyf í fórum sínum. Leikarinn sat í bíl ásamt vini sínum þegar lögreglu bar að garði. Við leit í bílnum fannst jóna og voru piltarnir handteknir í kjölfarið og verði Crawford fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsisdóm.

Foreldrar leikarans eru miður sín vegna fréttanna og vilja nú að Crawford taki sér hlé frá skemmtanalífinu.

„Hann er af mjög góðu fólki kominn og foreldrar hans voru miður sín að sjá fréttirnar af handtöku hans. Chace hafði þó ekki verið að reykja jónuna og hún tilheyrði vini hans, foreldrar hans trúa því en þeim finnst samt leiðinlegt að hann skuli vera tengdur þessu máli. Þau eru mjög ströng og bjuggust ekki við þessu af syni sínum," var haft eftir ónefndum heimildarmanni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×