Fótbolti

Makelele í slagsmálum við gömlu kærustuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Claude Makelele.
Claude Makelele. Mynd/Nordic Photos/Getty
Claude Makelele, fyrrum leikmaður Chelsea og Real Madrid og núverandi leikmaður Paris Saint-Germain, lenti í slagsmálum við gamla kærustu á heimili sínu á dögunum. Bæði Makelele og gamla kærastan hafa nú kært hvort annað og málið verður útkljáð í réttarsal.

Atvikið gerðist í gærkvöldi þegar 35 ára breska kona braust inn á heimili Claude Makelele í La Celle-Saint-Cloud hverfinu sem er fínt úthverfi í París.

Læknar hafa ráðlagt konunni að sleppa því að fara til vinnu í tvo daga á meðan hún er að jafna sig eftir slagsmálin.

Claude Makelele er 37 ára gamall og hefur leikið með Paris Saint-Germain síðan að hann kom þangað frá Chelsea árið 2008. Hann á að baki 71 landsleik fyrir Frakka en hætti að spila með landsliðinu árið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×