Fótbolti

Stoðsending og sigurmark frá Veigari

Elvar Geir Magnússon skrifar
Veigar eldhress á landsliðsæfingu.
Veigar eldhress á landsliðsæfingu.

Veigar Páll Gunnarsson skoraði sigurmark Stabæk þegar liðið vann 2-1 útisigur gegn Kongsvinger í norska boltanum.

Veigar var í stuði í leiknum en hann lagði upp fyrra mark Stabæk í leiknum. Það var svo Pálmi Rafn Pálmason sem átti stoðsendinguna á Veigar í sigurmarkinu.

Kongsvinger er í næstneðsta sæti, því fimmtánda, en Stabæk í ellefta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×