Lífið

Lindsay rekin út af næturklúbbi um helgina

Lindsay alltaf í stuði.
Lindsay alltaf í stuði.

Vandræðasaga Lindsay Lohan heldur áfram. Á föstudaginn hitti hún fyrrum kærustuna Samönthu Ronson á næturklúbbi í Hollywood, æpti á hana og henti glasi í höfuðið á henni. Lindsay var rekin út af staðnum í kjölfarið.

Eins og venjulega minntust þær á atvikið á Twitter-síðum sínum í kjölfarið. Plötusnúðurinn Samantha sagði: „Fékk glas í hausinn ... Hmmm- hver ætli hafi kastað því?"

Lindsay virðist aftur á móti hafa verið með djammviskubit því hún sagðist ætla að hætta klúbbastandinu. „Aldrei aftur. Ég er búin að læra mína lexíu," sagði hún en svo er að sjá hvort hún standist púkann þegar hann bankar aftur upp á.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.