Körfubolti

NBA: Toronto skellti Dallas

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Aðeins tveir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Toronto lagði Dallas og Denver vann góðan sigur á Utah Jazz.

Chris Bosh var með böggum hildar yfir því að Dallas Cowboys skildi tapa í úrslitakeppni NFL-deildarinnar í gær en hann lét það ekki stöðva sig er hann nældi í sína 29. tvöföldu tvennu er Toronto pakkaði Dallas saman.

Bosh var með 23 stig og 13 fráköst í leik þar sem Dallas átti aldrei möguleika.

Úrslit næturinnar:

Toronto-Dallas  110-88

Denver-Utah  119-112

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×