Fótbolti

Mourinho ætlar að kaupa Khedira

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur staðfest að hann hafi mikinn áhuga á því að kaupa þýska miðjumanninn Sami Khedira frá Stuttgart.

Þessi 23 ára miðjumaður sló í gegn með þýska landsliðinu á HM og vakti athygli fjölmargra félaga á sér.

"Við ætlum okkur ekki að vera kóngarnir á leikmannamarkaðnum. Við erum búnir að kaupa Angel Di Maria og hann var dýr. Nú ætlum við að reyna að fá Khedira en þetta eru báðir leikmenn sem geta orðið enn sterkari í framtíðinni. Það er spennandi að vinna með slíkum leikmönnum," sagði Mourinho.

"Okkur vantar varnarmann og miðjumann. Það er samt ekki auðvelt að versla því leikmenn hækka í verði um leið og Real sýnir áhuga."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×