Körfubolti

McGrady með mörg járn í eldinum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Tracy McGrady er enn að leita sér að félagi en hann æfði með LA Clippers í gær eftir að hafa farið í læknisskoðun hjá félaginu á þriðjudag.

Þó svo hann hafi æft með félaginu er enn langur vegur frá því að félagið semji við hann enda er McGrady með fleiri járn í eldinum.

Hann setti á Twitter að hann væri einnig að skoða LA Lakers, Miami og Chicago.

Hinn 31 árs gamli McGrady hefur verið mikið meiddur síðustu ár en bakið, axlirnar og hnén hafa verið að plaga hann.

McGrady hefur aðeins leikið 65 leiki á síðustu þremur árum og hefur ekki verið með yfir 40 prósent skotnýtingu síðan leiktíðina 2007-08.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×