Fótbolti

Mörk eru eins og tómatsósa

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nistelrooy býr yfir skemmtilegum heimspekilegum pælingum.
Nistelrooy býr yfir skemmtilegum heimspekilegum pælingum.

Gonzalo Higuain segist hafa fengið góð ráð frá markahróknum Ruud van Nistelrooy þegar hann mætti á Bernabeu. Nistelrooy sagði honum að mörk væru eins og tómatsósa.

Higuain hefur skorað 16 mörk í 18 leikjum fyrir Real Madrid í vetur.

„Ruud sagði mér að mörk væru eins og tómatsósa. Stundum kemur ekkert út sama hvað þú reynir, svo allt í einu kemur hún og það í miklu magni," sagði Higuain.

Margir spáðu því að leikmaðurinn myndi yfirgefa Madríd eftir að félagið fékk til sín leikmenn eins og Kaka, Cristiano Ronaldo og Karim Benzema. Það hefur þó farið á annan veg og líklegt að Higuain vinni Pichichi bikarinn sem markakóngur spænsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×