Erlent

Ólöglegar handtökur

frá mótmælunum Í stað handjárna voru hendur mótmælenda festar með plastböndum.nordicphotos/afp
frá mótmælunum Í stað handjárna voru hendur mótmælenda festar með plastböndum.nordicphotos/afp

Fjöldahandtökur lögreglunnar í Kaupmannahöfn vegna mótmæla á loftslagsráðstefnunni fyrir ári voru ólögmætar.

Héraðsdómur í Kaupmannahöfn komst að þessari niðurstöðu fyrir helgi. Lögreglan handtók 905 manns í fjöldamótmælunum hinn 12. desember í fyrra. Hendur fólks voru bundnar með plastböndum í stað handjárna.

Fólkið þurfti að sitja í röðum á götu í allt að fjórar klukkustundir. Dómstóllinn segir að aðstæður fólksins hafi verið niðurlægjandi og því brot á Mannréttindasáttmála Evrópu.

Lögreglan var dæmd til að greiða þeim 250 manns sem kærðu handtökurnar skaðabætur. Lögreglan hyggst áfrýja.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×