Fótbolti

Ég er ekki hjá Real Madrid til þess að horfa á fótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lassana Diarra.
Lassana Diarra. Mynd/Nordic Photos/Getty
Lassana Diarra, franski miðjumaðurinn hjá Real Madrid, gæti verið á förum frá spænska félaginu ef marka má ummæli hans á blaðamannafundi fyrir landsleiki Frakka á móti Rúmeníu og Lúxemborg.

„Ég hef fengið lítið að spila. Auðvitað vildi ég spila meira og er því óánægður. Ég mun draga mínar eigin ályktanir," sagði Lassana Diarra sem hefur ekki átt upp á pallborðið hjá Jose Mourinho síðan að Portúgalinn tók við liði Real.

„Ég er ekki hjá Real Madrid til þess að horfa á fótbolta. Ég vil fá að spila," sagði varnartengiliðurinn sem kom til Real Madrid í fyrra frá Portsmouth.

Diarra hefur leikið 4 leiki í spænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili þar af var hann varamaður í tveimur þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×