Fótbolti

Ætli Bayern-menn séu nokkuð búnir að gleyma 26. maí 1999? - myndasyrpa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Manchester United fagna sigri sínum í Meistaradeildinni fyrir tæpum ellefu árum.
Leikmenn Manchester United fagna sigri sínum í Meistaradeildinni fyrir tæpum ellefu árum.

Bayern Munchen tekur í kvöld á móti Manchester United í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Manchester United hefur aðeins náð að vinna einn af sjö leikjum sínum á móti Bayern Munchen en sá sigur var örugglega sætari en þeir flestir.

Manchester tryggði sér þá sigur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með því að skora tvö mörk í uppbótartíma og þau gerðu varamennirnir Teddy Sheringham og Ole Gunnar Solskjær.

Bæði mörkin komu eftir hornspyrnu í þeirri fyrri var markvörðurinn Peter Schmeichel kominn fram til þess að auka pressuna á mark Bayern. Mario Basler hafði komið Bayern í 1-0 með marki beint úr aukaspyrnu á 6. mínútu leiksins.

Það var frægt þegar Lennart Johansson, þáverandi forseti UEFA, hélt að hann væri að fara afhenda Bayern gullið en ekki silfrið því mörkin komu bæði á meðan hann var í lyftunni á leiðinni úr heiðursstúkunni niður á völlinn.

Í tilefni af leik kvöldsins höfum við sótt seilst ofan í Getty-myndabankann og sótt nokkrar ógleymanlegar myndir frá þessum sögulega leik á Nývangi í Barcelona fyrir tæpum ellefu árum síðan.

Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.

Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images
Mynd/Nordic Photos /Getty Images



Fleiri fréttir

Sjá meira


×