Körfubolti

IE-deild kvenna: KR komið í úrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/Anton

Deildarmeistarar KR tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Iceland Express-deildar kvenna með dramatískum sigri á Haukum, 63-61. KR vann einvígi liðanna 3-0.

Haukar voru staðráðnir að selja sig dýrt og leiddu nánast allan leikinn. KR-liðið kom síðan til baka og skreið fram úr undir lokin.

Margrét Kara Sturludóttir var stigahæst í liði KR með 15 stig. Jenny Pfeiffer-Finora skoraði 14.

Kiki Jean Lund skoraði mest fyrir Hauka eða 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×