Fótbolti

Ujfalusi fær tveggja leikja bann fyrir brotið á Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi sést hér sárþjáður eftir brotið hjá Tomas Ujfalusi.
Lionel Messi sést hér sárþjáður eftir brotið hjá Tomas Ujfalusi. Mynd/AFP
Tomas Ujfalusi, tékkneski varnarmaðurinn hjá Atletico Madrid, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir brot sitt á Lionel Messi í spænsku deildinni um síðustu helgi. Lionel Messi missir af næstu tveimur leikjum Barcelona og gæti verið enn lengur frá.

Tomas Ujfalusi mun hinsvegar missa af leikjum Atletico við Valencia og Real Zaragoza en hann fékk rautt spjald fyrir brotið sem kom í lok leiksins sem Barcelona vann 2-1.

Ujfalusi bað Messi afsökunar en hann sagðist hafa verið að reyna við boltann og að það hafi verið óheppni að hann skyldi stíga ofan á ökklann á Messi.

Brotið leit ekki vel út og Lionel Messi var í rauninn heppninn að meiðast ekki meira en hann gerði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×