Lífið

Hasarhetjur á toppinn

the expendables Dolph Lundgren og Terry Crews leika í harðhausamyndinni The Expendables.nordicphotos/getty
the expendables Dolph Lundgren og Terry Crews leika í harðhausamyndinni The Expendables.nordicphotos/getty

Harðhausamyndin The Expendables var frumsýnd vestanhafs um síðustu helgi og fór beint í efsta sætið yfir vinsælustu myndirnar. Myndin er stútfull af hasarmyndahetjum á borð við Sylvester Stallone, Bruce Willis, Jet Li, Jason Statham, Dolph Lundgren og Arnold Scwarzenegger og koma vinsældir hennar því ekki á óvart.

Í öðru sæti var Eat, Love, Pray með Juliu Roberts í aðalhlutverki. Hún fjallar um konu sem ferðast um heiminn eftir að hafa lent í skilnaði. Gamanmyndin The Other Guys, sem var í efsta sætinu, er nú í þriðja sæti. Will Ferrell leikur aðalhlutverkið í þeirri mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.