Fótbolti

Mourinho er bóluefnið gegn Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Spænski varnarmaðurinn Sergio Ramos hjá Real Madrid segir að þjálfarinn José Mourinho sé bóluefnið sem vantaði til þess að stöðva einokun Barcelona á Spáni.

Real Madrid hefur ekki unnið titil síðustu tvö ár þrátt fyrir frábæran mannskap.

"Ég vona að José sé bóluefnið gegn Barcelona. Ég er mjög spenntur fyrir þessu tímabili. Real Madrid þarf á titlum að halda og við erum smám saman að sýna að við erum lið," sagði Ramos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×