Fótbolti

Real Madrid heldur pressunni á Barcelona

Ómar Þorgeirsson skrifar
Kaka fagnar marki sínu í kvöld.
Kaka fagnar marki sínu í kvöld. Nordic photos/AFP

Real Madrid vann öruggan 3-0 sigur gegn Espanyol á Santiago Bernabeu-leikvanginum í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sergio Ramos kom heimamönnum yfir með skallamarki strax á fimmtu mínútu og Kaka bætti við öðru marki eftir hálftíma leik.

Varamaðurinn Gonzalo Higuain innsiglaði svo sigur Madridinga með marki á 90. mínútu en þetta var tólfta mark Argentínumannsins í deildinni í vetur.

Real Madrid er því sem fyrr fimm stigum á eftir Barcelona í toppbaráttunni á Spáni líkt og í upphafi dags. Barcelona vann 2-1 sigur gegn Getafe en Valencia, sem er í þriðja sætinu, vann Real Valladolid 2-0 í dag með mörkum David Villa og Ever Banega.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×