Erlent

Stærsta húsleit alríkislögreglu

Wall Street.
Wall Street.

Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, staðfestir að yfirvöld rannsaki mál sem tengist hugsanlegum fjármálabrotum á Wall Street.

Holder hélt blaðamannafund um málið í gær. Hann vildi ekkert segja til um það hvort rannsóknin beindist að starfsemi vogunarsjóðs eða innherjaviðskiptum.

Bandaríska alríkislögreglan (FBI) gerði húsleit á skrifstofum þriggja vogunarsjóða í New York, Connecticut og Massachusetts í síðustu viku. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×