Fótbolti

Iniesta segist vera búinn að sjá sigurmarkið sitt á HM þúsund sinnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andres Iniesta skorar hér sigurmarkið sitt í úrslitaleik HM í sumar.
Andres Iniesta skorar hér sigurmarkið sitt í úrslitaleik HM í sumar. Mynd/AFP
Andres Iniesta, leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, segist örugglega vera búinn að sjá sigurmarkið sitt á HM þúsund sinnum en tilfinningin við það að horfa á það komist hvergi nærri tilfinningunni þegar hann skoraði markið í úrslitaleik HM 11. júlí síðastliðinn.

„Ég horfi á alla mína leiki mörgum sinnum. Það hjálpar mér við að bæta mig sem knattspyrnumann. Það er líka alltaf verið að sýna markið í sjónvarpið og þess vegna hef ég örugglega séð þetta mark svona þúsund sinnum," sagði Andres Iniesta við spænska blaðið El Pais.

„Tilfinningin á vellinum var einstök og hana er ekki hægt að upplifa aftur. Það er ekki sama að horfa á mark og að skora mark," sagði Iniesta sem segist aldrei eiga eftir að skora mark sem hefur jafnmikla þýðingu og markið í úrslitaleik HM í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×