Körfubolti

Bryant: West hefur kennt mér ótrúlega mikið

Ómar Þorgeirsson skrifar
Kobe Bryant.
Kobe Bryant. Nordic photos/AFP

NBA stórstjarnan Kobe Bryant náði þeim merka áfanga í nótt að verða stigahæsti leikmaður í sögu LA Lakers þegar hann skoraði 44 stig í 95-93 tapi Lakers gegn Memphis Grizzlies.

Bryant var svekktur með tapið í leikslok en að sama skapi stoltur af meti sínu en hann komst upp fyrir Jerry West sem Bryant kveðst eiga mikið að þakka.

„Þetta er vitanlega gríðarlega mikill heiður út af öllum þeim frábæru leikmönnum sem spilað hafa fyrir Lakers og þeirra miklu hefðar sem er hjá félaginu.

West kenndi mér ótrúlega mikið þegar ég kom til Lakers aðeins 17 ára gamall og svo allar götur síðan. Hann kenndi mér margt um leikinn auk þess að hjálpa mér að fínpússa ýmsar hreyfingar á vellinum.

Jafnvel þó svo að ég hafi farið upp fyrir hann á þessum lista þá er ég bara hluti af þessarri frábæru heild og sögu sem félagið hefur skapað sér," sagði Bryant í leikslok í nótt en hann hefur nú skorað 25208 stig fyrir Lakers.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×