Ólafur: Við þurfum að rífa okkur upp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2010 22:19 Ólafur í átökum í kvöld. Mynd/Daníel
Ólafur Guðmundsson var markahæstur hjá FH-ingum í átta marka sigri á Aftureldingu í Mosfellsbænum í kvöld og hann var mjög ánægður með hvernig liðið kom til baka eftir skell á móti Akureyri á heimavelli um síðustu helgi. „Við þurfum að rífa okkur upp eftir leikinn á móti Akureyri. Þar var algjört andleysi í liðinu í seinni hálfleik og við þurfum að mætat sterkir í þennan leik fyrir okkur, fyrir klúbbinn og til að halda okkur í toppbaráttunni í deildinni," sagði Ólafur. „Við gerðum það og sýndum með því karakter því það er ekkert sjálfgefið að koma til baka eftir svona leik eins og á móti Akueyri," sagði Ólafur sem var seinn í gang en spilaði vel eftir að hann skoraði fyrsta markið sitt eftir 18 mínútna leik. „Við lögðum fyrst og fremst upp með að spila varnarleikinn vel. Við fáum á okkur sjö mörk í fyrri hálfleik og ef þú færð á þig sjö mörk í hálfleik þá ertu alltaf yfir. Við vorum ekkert frábærir í sókninni en við gerðum nóg til að vinna og ég er mjög sáttur," sagði Ólafur. „Sigurinn var aldrei í hættu þótt við höfum ekkert verið að spila neitt frábærlega. Þetta var bara seigla og svona vinnum við leiki, með því að halda alltaf áfram. Þetta var klassasigur hjá okkur," sagði Ólafur. „Það var engin örvænting í gangi í liðinu. Við töpuðum þremur leikjum á stuttum tíma og töpuðum illa í síðasta leik. Það var svolítið erfitt andlega en við komum til baka og vorum félaginu til sóma í kvöld," sagði Ólafur að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Í beinni: KR - Fram | Rúnar snýr aftur á Meistaravelli Íslenski boltinn Arnar Pétursson átti sitt besta hlaup í Berlín Sport Fleiri fréttir Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Sjá meira