Fótbolti

Almeria nældi í jafntefli gegn Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi fagnar einu af tveimur mörkum sínum í kvöld.
Messi fagnar einu af tveimur mörkum sínum í kvöld.

Barcelona tapaði óvænt tveimur stigum í kvöld er liðið varð að sætta sig við jafntefli, 2-2, gegn Almeria.

Domingo kom Almeria yfir á 12. mínútu leiksins en Lionel Messi jafnaði leikinn þrem mínútum fyrir hálfleik.

Carles Puyol varð síðan fyrir því óhappi að skora sjálfsmark á 57. mínútu og koma Almeria þar með yfir í leiknum. Aftur kom Messi til bjargar er hann jafnaði á 66. mínútu.

Barcelona er nú með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar en Real Madrid getur náð Barca takist liðinu að leggja Sevilla en liðin eigast nú við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×