Enski boltinn

Van der Vaart úr leik og gæti misst af HM

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Rafael Van der vaart.
Rafael Van der vaart.

Hollendingurinn Rafael Van der Vaart, leikmaður Real Madrid, meiddist aftan í læri í 3-1 sigri liðsins gegn Real Zaragoza í gær. En þetta kom fram á heimasíðu Real Madrid í dag.

Þetta eru slæm tíðindi fyrir Real Madrid og ekki síst leikmanninn sjálfan þar sem hann missir af lokasprettinum í spænsku deildinni og líklega HM í sumar líka.

Ef meiðslin reynast eins alvarleg og búist er við þarf þjálfari Hollendinga Bert van Marwijk að endurskoða leikmannahóp sinn þar sem hann reiknaði eflaust með kröftum Van der vaart á mótinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×