Lífið

Jenny fær þrjá milljarða frá Jim Carrey

Jenny og Jim meðan allt lék í lyndi.
Jenny og Jim meðan allt lék í lyndi.
Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því í dag að leikkonan Jenny McCarthy fái greiddar 25 milljónir dollara (ríflega þrjá milljarða króna) eftir sambandsslitin við leikarann Jim Carrey.

Parið gifti sig aldrei en þau gerðu víst með sér sáttmála þar sem kom fram að hún fengi bætur samt sem áður. Þær hljóða upp á fimm milljónir dollara fyrir hvert ár með leikaranum.

Einhverjir telja að svona hafi Jim Carrey róað hana þegar hún fór að velta brúðkaupi fyrir sér. Sá ráðahagur hafi ekki hentað honum á meðan henni var umhugað um fjárhag sinn og sonar síns, sem er sjö ára og einhverfur.

Í samningnum er víst einnig kveðið á um það að hún megi ekki tjá sig um sambandið og athafnir Jim. Meðal þess sem ekki má koma fram er að hann á það til að loka sig inni í marga klukkutíma og biðja fyrir framan Búddalíkneski.

Ennþá nýbyrjuð saman á U.S. Open árið 2006.
Nýkomin úr mat með Tom Cruise og Katie Holmes í Róm, rétt fyrir brúðkaup þeirra í nóvember 2006.
Maí 2007. Hér eru þau í Las Vegas að horfa á bardaga De la Hoya og Mayweather með John Cusack.
Júní 2008. Með börnum þeirra frá fyrri samböndum, Evan Asher og Jane Carrey. Þau voru í Washington að berjast fyrir umhverfisvænni bóluefnum fyrir börn.
Júní 2008. Koss í Washington.
Á frumsýningu Pineapple Express í júlí 2008.
Á frumsýningu Yes Man í desember 2008.
Á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí 2009.
Október 2009.
Að kynna Christmas Carol í nóvember í fyrra.

Tengdar fréttir

Jim Carrey og Jenny McCarthy hætt saman

Leikararnir Jim Carrey og Jenny McCarthy eru hætt saman eftir fimm ára samband. Þetta tilkynntu þau á Twitter-síðum sínum í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.