Lífið

Kim fór í megrun

Ný kona Kim Kardashian fór í megrun.
Ný kona Kim Kardashian fór í megrun.

Partípinninn Kim Kardashian er hæstánægð með útlitið eftir nýlegar aðhaldsaðgerðir.

Kim Kardashian segir að hún sé öruggari með sig eftir að hafa losað sig við aukakílóin. Skemmtanaljónið, sem nýlega hætti með Reggie Bush, er ánægt með útlitið og segir að sér líði betur nú þegar í sundfötum en áður. „Ég missti tvö og hálft kíló á fimm dögum. Mig langaði bara að skera mig niður og losna við þessi aukakíló sem ég var með. Þetta hefur styrkt sjálfsálit mitt mikið. Ég æfi og mér líður vel með sjálfa mig. Auðvitað er svo ekki verra ef einhver tekur eftir því," segir hún.

Til að grennast minnkaði Kim neyslu kolvetna. Hún neytti í staðinn ávaxta og grænmetis og segir að það ásamt æfingum hafi skilað sér vel. „Ég var alltaf svo feimin þegar ég var í bik­iníi í myndatökum. Það er ótrúlegt hversu miklu betur mér líður."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.