Skoðun

Áframhaldandi stöðnun

Einar K. Guðfinnsson skrifar
Enn fáum við það staðfest að stöðnun ríkir í efnahagsmálunum. Gagnstætt því sem stjórnarliðar hafa haldið fram, þá er landið ekki að rísa. Hagstofan segir að landsframleiðslan hafi aukist um rúmt prósent á milli annars og þriðja ársfjórðungs, en dregist þó saman á milli ára. - Og mönnunum munar annað hvort aftur á bak, ellegar nokkuð á leið, eins og listaskáldið góða kvað.

En þessar hagtölur segja ekki nema brot af sögunni. Sá vottur af vexti landsframleiðslunnar sem menn telja sig glitta þarna í, styðst við ákaflega valtar forsendur. Þegar nánar er skoðað blasir við okkur að skýringanna er að leita í meiri einkaneyslu. Allir sjá hins vegar að á slíkt er varlegt að treysta. Ofurskuldsett heimilin geta ekki haldið uppi hagvexti með aukinni einkaneyslu á tímum lækkandi kaupmáttar, nema því aðeins að ganga á eigur sínar og auka skuldirnar. Fyrir því eru hins vegar engar forsendur.

Kannski mun jólamánuðurinn eða útsölurnar í janúar, gera það að verkum að lífsmark verði áfram í einkaneyslunni, en varla verður hagvöxtur drifinn áfram með árstíðabundnum útsölum. Eða reiðir ríkisstjórnin sig á útsölur, í vonlítilli leit sinni að batamerkjum í efnahagslífinu?

Hin skuggalegu tíðindi getur að líta í fjárfestingartölunum. Enn er þar allt á niðurleið. Fjárfestingar atvinnulífsins dragast saman á milli ársfjórðunga um heil tíu prósent og það ofan í þann mikla samdrátt sem verið hefur á þessum sviðum. Fjárfestingar hér á landi eru eins og þær voru í síðari heimsstyrjöldinni. Við þurfum því að leita aftur til styrjaldarástands, til þess að finna samjöfnuð.

Þetta þyrfti ekki að vera svona. Það eru liðin tvö ár frá bankahruninu. Miklum tíma hefur verið sóað. Fullkomið skilningsleysi ríkir hjá stjórnvöldum. Þau standa í vegi fyrir fjárfestingu og hamla því viðreisn efnahagslífsins.

Pólitísk óvissa fælir fjárfestingar frá okkur. Skattabreytingar, aukið flækjustig og kostnaðarhækkanir draga mátt úr atvinnulífinu. Þúsundir fyrirtækja bíða árangurslaust eftir úrlausnum innan bankakerfisins og geta sig því lítt hrært. Umhverfi sjávarútvegsins er í uppnámi vegna sjávarútvegsstefnunnar. Ríkisvaldið leggur steina í götu fjárfestinga á sviði orkufrekara fjárfestinga, jafnt áliðnaðar, sem gagnavera. Þegar þannig er unnið gagnvart okkar stærstu útflutningsgreinum er ekki von á góðu.

Nú dugir ekki lengur að líta til baka eins og hefur verið háttur stjórnvalda. Þau verða að líta í eigin barm og viðurkenna að stefna þeirra í atvinnumálum er sökudólgurinn.

 




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×