Innlent

Erlendir ferðamenn rændir í Laugardal

Tjaldað í blíðunni Rænt var úr nokkrum tjöldum á tjaldsvæðinu í Laugardal í sumar. Starfsmaður segir óreglufólk hafa farið í tjöldin. Fréttablaðið/Valli
Tjaldað í blíðunni Rænt var úr nokkrum tjöldum á tjaldsvæðinu í Laugardal í sumar. Starfsmaður segir óreglufólk hafa farið í tjöldin. Fréttablaðið/Valli

Þýski ferðabókahöfundurinn Ulf Hoffmann frá Berlín varð fyrir þeirri leiðinlegu upplifun að óprúttnir einstaklingar hentu, að því er hann taldi, tveggja kílóa grjóthnullungi í tjald hans með þeim afleiðingum að það skemmdist, á tjaldsvæðinu í Laugardal í sumar.

Hoffman telur tilgang grjótkastsins hafa verið að kanna hvort einhver væri í tjaldinu. Þegar svo var ekki var farið inn í tjaldið og verðmætum stolið úr því. Starfsfólk tjaldsvæðisins fann hluta þýfisins í nálægum runnum.

Hoffman, sem skrifað hefur ferðabók fyrir hjólareiðafólk sem hyggur á ferðir um Ísland, skrifar um þjófnaðinn á vefsíðu sinni sem fjallar um ferðlög hans.

Þar gagnrýnir hann aðstæður á tjaldsvæðinu og telur líklegt að þjófarnir hafi komist óhindrað inn á svæðið yfir lélega girðingu. Hann segir jafnframt viðbrögðin við þjófnaðinum hafa komið sér á óvart. Starfsfólk tjaldsvæðisins hafi ekki vitað hvernig það ætti að bregðast við og ekki skrifað niður heimilisfang hans ef eitthvað af því sem stolið var kæmi í leitirnar. Þá hafi lögregla lítið gert. Hann brýnir fyrir ferðamönnum á reiðhjólum að hafa aldrei augun af tjöldum sínum og hjólum.

„Í byrjun sumars var skorið gat á tjöld nokkurra ferðamanna og peningum þeirra og fleiri verðmætum stolið. En við höfum aldrei vitað til þess að nokkurn tíma hafi steini verið hent í tjald,“ segir María Rún Stefánsdóttir, starfsmaður tjaldsvæðisins í Laugardal. Hún kannast ekki við að áður hafi verið stolið úr tjöldum ferðalanga sem gisti á tjaldsvæðinu.

María segir starfsfólk hafa í kjölfar þessa farið að fylgjast betur með tjaldsvæðinu og tekið eftir því að hópur fólks hafi reist tjöld rétt utan við það.

„Þetta var óreglufólk. Við erum búin að gera ráðstafanir og fylgjumst með því að það komi ekki inn á tjaldsvæðið.“ jonab@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×