Lífið

Paris komin aftur á markaðinn

Paris Hilton er komin aftur á markaðinn. Þeir reyna eflaust nokkrir að næla í hana.
Paris Hilton er komin aftur á markaðinn. Þeir reyna eflaust nokkrir að næla í hana.

Hótelerfinginn Paris Hilton er hætt með kærasta sínum, raunveruleikastjörnunni Dough Reinhardt. Spurningar um sambandið kviknuðu þegar parið, sem hefur verið óaðskiljanlegt frá upphafi, var myndað hvort í sínu lagi. Hilton eyddi páskahelginni með foreldrum sínum í Palm Springs en Reinhardt heimsótti fjölskyldu sína í Aspen.

„Doug hafði þó hugsað sér að koma við í Vegas og ræða málin við Paris en hætti við. Ég held að hann hafi ákveðið að fara til Aspen til að reyna að jafna sig á sambandsslitunum," var haft eftir vini Reinhardts.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Paris og Doug yfirgefa einkaþotu Parisar á leiðinni á kjötkveðjuhátíðina í Ríó í febrúar.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.