Lífið

Courteney Cox heldur framhjá með mótleikara

Star Magazine vill meina að Courteney Cox og Brian Van Holt eigi í ástarsambandi. Mynd/AFP
Star Magazine vill meina að Courteney Cox og Brian Van Holt eigi í ástarsambandi. Mynd/AFP

Tímaritið Star Magazine heldur því fram að leikkonan Courteney Cox eigi í ástarsambandi við mótleikara sinn úr sjónvarpsþáttunum Cougar Town, Brian Van Holt. Cox hefur verið gift leikaranum David Arquette í tíu ár og eiga þau saman eina dóttur, hina fimm ára gömlu Coco.

Sjónarvottar vilja meina að Cox og Van Holt hafi látið vel að hvort öðru á meðan þau snæddu saman á veitingastað í Malibu auk þess sem þau hafa eytt miklum tíma saman undanfarnar fjórar vikur þrátt fyrir að tökum á sjónvarpsþættinum hafi lokið í apríl.

„Courteney og Brian drukku bjór og deildu smárétti saman úti á verönd. Þau virtust haldast í hendur á einum tímapunkti. Eftir matinn kvöddust þau með faðmlagi og kossi," var haft eftir sjónarvotti.

Hér er sýnishorn fyrir Cougar Town en þættirnir hefja göngu sína á Stöð 2 í sumar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.