Lífið

Cameron mætti með Shrek-strákana á frumsýningu

Cameron Diaz dró vagninn á Shrek-frumsýningunni.
Cameron Diaz dró vagninn á Shrek-frumsýningunni.

Stórmyndin Shrek Forever After var aðalfrumsýning Tribeca-kvikmyndahátíðarinnar, sem hófst fyrir helgi í New York. Cameron Diaz var þar mætt fremst í flokki að kynna myndina en með henni voru þeir Mike Myers, Eddie Murphy og Antonio Banderas.

Robert DeNiro var að sjálfsögðu á svæðinu en hann stofnaði kvikmyndahátíðina til að auka veg Tribeca-hverfisins í New York eftir árásirnar 11. september.

Þrátt fyrir að leikararnir væru allir glimrandi hressir á frumsýningunni dugði það ekki til. Nokkrum gagnrýnendum var boðið á sýninguna og benda fyrstu dómar til þess að myndin sé ekki upp á marga fiska.

Cameron Diaz mætti í sínu fínasta pússi.
Antonio Banderas mætti með eiginkonuna Melanie Griffith upp á arminn.
Shrek sjálfur, Mike Myers.
Cameron Diaz talar fyrir prinsessuna.
Aðalraddirnar á bakvið Shrek-myndirnar.
Robert DeNiro er hér ásamt konunni sem stofnaði Tribeca-kvikmyndahátíðina með honum, Grace Hightower.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.