Fótbolti

Ronaldo á að lokka Rooney til Real

Elvar Geir Magnússon skrifar

The Sun heldur áfram að flytja fréttir af áhuga spænska stórliðsins Real Madrid á sóknarmanninum Wayne Rooney.

Nú segir blaðið að Cristiano Ronaldo eigi að fá það hlutverk að reyna að lokka fyrrum samherja sinn til Madrídar.

Samkvæmt heimildum blaðsins mun Real koma með risatilboð í Rooney í sumar og á Ronaldo að leggja inn gott orð um félagið fyrir félaga sinn. Tilboðið á að vera um 90 milljónir punda. Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur svarað þessum fréttum á einfaldan hátt. Hann segir Rooney ekki á förum frá Old Trafford.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×