Fótbolti

Rooney efstur á óskalista Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Fram kemur í Daily Star í dag að enski landsliðsframherjinn Wayne Rooney sé efstur á óskalista Evrópumeistara Barcelona.

Blaðið segir að Barcelona sé til í að greiða Rooney 9 milljónir evra í laun, eftir skatta. Eftir því sem fram kemur í fréttinni má Man. Utd gera ráð fyrir risatilboði í leikmanninn næsta sumar.

Núverandi samningur Rooney við Man. Utd rennur út 2012 en United hefur ekki áhuga á því að selja leikmanninn og er sem stendur í samningaviðræðum við hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×