Körfubolti

Parker sagður hafa haldið við eiginkonu Brent Barry

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Parið á meðan allt lék í lyndi.
Parið á meðan allt lék í lyndi.

Eins og flestum ætti að vera kunnugt hefur leikkonan Eva Longoria sótt um skilnað frá Tony Parker, leikmanni San Antonio Spurs. Ástæðan er framhjáhald leikmannsins.

Að því er fram kemur hjá Bryan Armen Graham, blaðamanni Sports Illustrated, þá hélt Parker fram hjá með eiginkonu Brent Barry sem lék með honum hjá Spurs.

Sú heitir Erin Barry en Eva mun hafa fundið hundruði smáskilaboða frá Erin á síma Parker.

Samband Evu og Tony entist í sjö ár.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×