Lífið

Hótaði að nauðga Cheryl Cole

Skilaboðin voru skilin eftir á talhólfi kollega Cheryl Cole úr X Factor.
Skilaboðin voru skilin eftir á talhólfi kollega Cheryl Cole úr X Factor.
Lögreglan í London handtók 17 ára unglingspilt fyrr í dag. Hann hótaði að nauðga söngkonunni Cheryl Cole.

Cheryl Cole er hefur verið mikið í sviðsljósinu í vetur, bæði vegna skilnaðar síns við fótboltakappann Ashley Cole og einnig vegna þess að hún var einn dómara í skemmtiþættinum X Factor.

Pilturinn hringdi einmitt í stjórnanda þáttarins, Dermot O'Leary, og skildi eftir skilaboð með hótuninni á talhólfinu hans. Þetta var fyrir mánuði síðan. Hann er laus gegn tryggingu. Málið er í rannsókn.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.