Fótbolti

Barcelona skoraði fjögur mörk á móti Racing Santander

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thierry Henry fagnar marki sínu í kvöld.
Thierry Henry fagnar marki sínu í kvöld. Mynd/Getty Images
Barcelona náði fimm stiga forskot á Real Madrid á toppi spænsku deildarinnar eftir 4-0 sigur á Racing Santander í kvöld en Real Madrid á leik inni annað kvöld. Barcelona skoraði þrjú af mörkum sínum í fyrri hálfleik og vann auðveldan sigur.

Andrés Iniesta skoraði fyrsta markið á 7. mínútu og þeir Thierry Henry (29. mínúta) og Rafael Marquez (34.mínúta) skoruðu síðan báðir beint úr aukaspyrnu með aðeins fimm mínútna millibili.

Varamaðurinn Thiago skoraði síðan fjórða og síðasta mark Barcelona sex mínútum fyrir leikslok eftir að hafa fengið sendingu frá Lionel Messi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×